Færsluflokkur: Bloggar
11.10.2008 | 18:46
Latest News from the UK Mitsubishi Ralliart Evolution Challenge
Press Information |
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2008 | 15:44
Frítt inn - fjörug dagskrá - langar að benda á eitt sem er ókeypis og sálarauðgandi :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2008 | 15:30
Fréttaþurrð og aumar afsakanir !
Góðan daginn ágætu lesendur.
Eftir að íslandsmótinu í rallý lauk nú nýverið þá hefur lítið ekkert verið ritað hér á vefinn og er það vont - en við að sjálfsögðu óskum íslandsmeisturunum til hamingju með titlana sína :)
Til stóð að keppa í Bulldog rallinu sem fer fram núna 18.10 - en því miður verðum við að sleppa þeirri keppni.
En við systkynin erum hvergi nærri af baki dottin og eru átta vikur í þátttöku okkar í heimsmeistarakeppninni í Rallý. Eins og almenningur hefur ekki farið varhluta af þá er ástandið hér heima ekki beisið í augnablikinu - en við stefnum á að vera ljós í myrkrinu, stoltir fánaberar Íslands á erlendri grundu og vonandi verðugir kandídatar fyrir hönd þjóðarinnar í þessari keppni.
Það er skýrt að við munum mæta vel undirbúinn á allan hátt. Þetta verður hámark ferils okkar og það verður ekkert slegið til að vera klár í slaginn.
Það eru tugir íslendinga sem ætla að fylgja okkur út og hvetja okkur áfram í skógunum í Wales þarna í byrjun desember - ómetanlegur hvati að vita af þessu fólki sem er svona fórnfúst og áhugasamt.
Það verða einhverjar fréttir settar hér inn á næstu vikum, enn eru óbirtar töluvert að myndum og myndböndum frá keppnum ársins og alltaf bætist eitthvað við.
Kær kveðja / Danni & Ásta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.9.2008 | 14:58
Bráðabirgðaúrslit úr Haustrallinu - Pétur og Heimir vinna / Siggi og Ísak Íslandsmeistarar
Hæ.
Svo virðist sem Jon og Borgar hafi dottið út á fyrstu leið með bilaða drifrás.
Doddi komst af stað á Mözdu.... en ekki mikið lengra en það.
Fylkir datt út, Steini Palli datt út, Júlli á súkku og Jón bras á opel kláruðu ekki heldur - né simmi á pajero.
Þetta þýðir mikil afföll og úrslitin að öllum líkinudum svona:
Nýliðarnir Pétur og Heimir rústa þessari keppni með 40 sek betri tíma en Sigurður og Ísak - sem þó standa uppi sem Íslandsmeistarar 2008. Taktík þeirra í sumar skilar þessum titli en þeir hafa alls ekki verið hraðasta áhöfn sumarsins. Páll og Aðalsteinn ættu að hafa þriðja sætið í keppninni nokkuð örugglega - en það er óstaðfest eins og annað í þessari grein. ´
Nánar verður sagt frá þegar staðfest úrslit liggja fyrir á eftir.
DS
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2008 | 11:24
Millitímar af fyrstu leið í lokaumferð Íslandsmótsins í rallý
Á gatnamótum djúpavatns, Ísólfsskála hafnarfjarðarmegin er staðan svona:
Jón og Borgar
Sigurður og Ísak +1sek
Pétur og Heimir +5sek
Jafnara verður það ekki :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2008 | 09:00
Íslandsmótið í Rallý um helgina - það verður hörkuslagur í lokaumferðinni og nýr meistari krýndur!
Góðan daginn.
Til að byrja með er rétt að óska Ísak+Rut+Sóldísi til hamingju með strákinn sem fæddist í gær - enn einn framtíðar akstursíþróttamaðurinn kominn í heiminn :)
Nú um helgina fer fram sjötta og síðasta umferðin í Íslandsmótinu í Rally. Það er haustrall BIKR sem fer fram í nágreni Reykjavikur og er mikil hefð fyrir mikilli bleytu og rigningu í þessari keppni.
Það eru þrjár áhafnir sem geta náð Íslandsmeistaratitlinum og er því ljóst að bitist verður um hverja sekúndu í keppninni. Rallið er með sérstöku sniði þ.e sérleiðirnar eru aðeins þrjár og allar mjög langar. Þetta kallar á mikið úthald áhafna og bíla og líklegt að stærsti áhrifavaldurinn verði hverjir komist klakklaust alla leið.
Rásröð í keppninni er þessi:
Driver Ökumaður | Nat Þj | Co-driver Aðstoðarökumaður | Nat Þj | Nd | Grp G | Car Bifreið | ||
1 | 3 | Sigurður Bragi Guðmundsson | IS | Ísak Guðjónsson | IS | N | MMC Lancer Evo 7 | |
2 | 7 | Pétur S. Pétursson | IS | Heimir Jónsson | IS | N | MMC Lancer Evo 6 | |
3 | 2 | Jón Bjarni Hrólfsson | IS | Borgar Ólafsson | IS | N | MMC Lancer Evo 7 | |
4 | 6 | Fylkir A. Jónsson | IS | Elvar Jónsson | IS | N | Subaru Impreza STI | |
5 | 20 | Páll Harðarson | IS | Aðalsteinn Símonarson | IS | N | Subaru Impreza STI | |
6 | 63 | Ragnar Einarsson | IS | Steinar Sturluson | IS | N | Audi Quattro | |
7 | 64 | Þorsteinn Páll Sverrisson | IS | Ragnar Sverrisson | IS | N | Subaru Impreza 22B | |
8 | 65 | Garðar Þór Hilmarsson | IS | Jón Baldvin Jónsson | IS | N | Subaru Sticeland | |
9 | 5 | Hilmar B. Þráinsson | IS | Kristinn V. Sveinsson | IS | J12 | Jeep Cherokee | |
10 | 10 | Sigurður Óli Gunnarsson | IS | Elsa Kristín Sigurðardóttir | IS | N | Toyota Celica GT4 | |
11 | 12 | Þórður Bragason | IS | Jón Sigurðsson | IS | X | Mazda 323 Trend | |
12 | 15 | Sigmundur V. Guðnason | IS | Úlfar Eysteinsson | IS | J12 | MMC Pajero Sport | |
13 | 11 | Jóhannes V. Gunnarsson | IS | Björgvin Benediktsson | IS | J12 | Tomcat | |
14 | 67 | Guðmundur S. Sigurðsson | IS | Guðleif Ósk Árnadóttir | IS | J12 | MMC Pajero | |
15 | 28 | Kjartan M. Kjartansson | IS | Ólafur Þór Ólafsson | IS | 1600 | Toyota Corolla | |
16 | 23 | Henning Ólafsson | IS | Gylfi Guðmundsson | IS | 1600 | Toyota Corolla | |
17 | 29 | Ólafur Ingi Ólafsson | IS | Sigurður R. Guðmundsson | IS | 1600 | Toyota Corolla | |
18 | 40 | Magnús Þórðarson | IS | Bragi Þórðarson | IS | 1600 | Toyota Corolla | |
19 | 53 | Júlíus Ævarsson | IS | Guðni Freyr Ómarsson | IS | 1600 | Suzuki Swift | |
20 | 66 | Jón V. Gestsson | IS | Birgir Kristjánsson | IS | 2000 | Opel Corsa |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2008 | 13:22
Myndbönd innan úr bílnum okkar í Plains rallinu.
Góðan daginn.
Hér eru kominn nokkur myndbönd innan úr Ford Fiesta keppnisbílnum okkar sem ók til sigurs í N3 flokk Plains rallsins sem haldið var í Wales um síðustu helgi. Njótið vel:
Leið 5
Leið 6
Leið 7
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.9.2008 | 09:00
Óvæntur flokkasigur í Bretlandi um helgina - endalaust gaman.
Góðan daginn.
Eins og lesendur hafa tekið eftir þá skrapp ég út um helgina, leigði mér rallýbíl og aðstoðarökumann (fúlu ellingsen gaurar gátu ekki séð af Ástu) og keppti í Plains rallinu í Wales. Þetta er keppni sem er hluti af BRTDA mótaröðinni - en það er firnasterk röð sem ávallt laðar að sér mikið af WRC bílum og öflugum keppendum. Rallið var 188mílur þar af 45mílur á sérleiðum.
Fyrir kepppnina vissi ég að þetta yrði verðugt verkefni fyrir margar sakir: Þetta var í fyrsta sinn í mörg mörg ár sem ég keyri framhjóladrifsbíl í keppni, aldrei hitt þennan kóara fyrr en á laugardagsmorgun, aldrei séð myndband af leiðunum sem átti að keyra né unnið við leiðarnóturnar og það allra versta var þó að stýrið var öfugum megin í bílnum..
Þegar við Mark hittumst sagði ég strax: Ef við komumst í gegnum fyrstu leiðina í rallinu, þá klárum við keppnina. Við tókumst í hendur og lögðum af stað. Á fyrstu metrunum þá kom hann mjög seint með tvær leiðarnótur (hröð vinstri í hægri mjög krappa) og ég mátti nota alla mína krafta til að kasta bílnum og ná beygjunni - svo mikið að vinstri hlið bílsins gapti framm af klettasyllunni og Mark greyjið sá bara niður í dalinn... Allt reddaðist þetta og ég gargaði á hann að flýta nótunum. Þá var komið í hraða vinstri yfir hæð og innan í beygjunni var 60cm hár bakki. Ég sá þetta allt saman, tók línuna og keyrði beint á bakkann með þeim afleiðingum að bíllinn flaug upp vinstra megin og keyrði 15-20m á tveimur hjólum áður en hann kom aftur niður (ég greinilega ekki alveg með breidd bílsins á hreinu enþá). Þá stundi í Mark "what have I got myself into" - enda aðeins ca kílómeter búinn að rallinu og við bara búnir að vera tæpir.
Allt reddaðist þetta og eftir að vökvastýrið í bílnum gafst upp á leið 3 - þá var annað hvort að hætta keppni eða berjast allan daginn við ofurþungt stýrið.. Þetta er meira en að segja það, sérstaklega í þessum þröngu skógum með hundrað U-beygjum. En áfram börðumst við og kláruðum rallið öllum á óvörum í fyrsta sæti N3 - en það er flokkur óbreyttra bíla að 2000cc.
Sem fyrr voru Bretarnir ekkert himinlifandi með útflutningin á verðlaunagripunum en hvað um það - þeir verða bara að vanda sig meira næst og bera meiri virðingu fyrir víkingunum.
Ég tók upp seinni hluta rallsins innan í bílnum og mun ég vonandi fá Gerðu til að hlaða því niður fyrir mig í kvöld og setja hér inn.
Kærar þakkir fyrir allar hamingjuóskirnar - þið eruð mitt bensín í öllu þessu :)
DS
Bloggar | Breytt 23.9.2008 kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.9.2008 | 18:18
Danni vinnur N3 flokkinn í Plains rallinu
Danni ásamt Mark Ammonds voru að ljúka keppni í Plains rallinu í Bretlandi.
alls voru keyrðar átta sérleiðir. þeir luku þeim á tímanum 51:55 meðan næsti bíll á eftir keyrði á tímanum 52:12 og þei unnu því með 17 sek forustu.
ég heyrði í honum þegar hann var ný búinn og var ennþá að bíða eftir að hinir kláruðu keppni. fyrir seinustu leið höfðu þeir 20 sek forustu en seinasta leiðin gekk eithvað brösulega, líklega vegna þess að stýrismaskínan var ekki upp á 10. en þeir kláruðu í verðlaunasæti og er ekki annað hægt að segja heldur að xxxxxxxxxx SNILLD.. nú þarf hann Danni minn barað læra keyra aftur vinstramegin í bílnum:)
ég óska honum til hamingju með frábæran árangur og trúi ekki öðru en þeir hafi skemmt sér konunglega!
knús
Ásta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
20.9.2008 | 12:45
Danni á hægrihandar Fíestu með 7 sek forustu
yfir flóðhestur Daníel kíkti til bretlands nú í gær og er rétt í þessu að keppa í plains rallinu í Bretlandi ásamt breskum aðstoðarökumanni.
eins og sumir vita er þó evo 9an enn hér á Íslandi og ítilefni af því þá fékk Daníel leigða ford fiestu sem hann er að keppa á núna. hún er með hægrihandarstýri og pínulítil.
Daníel leiðir flokkinn núna í hádegishléiinu með 7 sekúndum en hefur þurft að keyra síðustu tvær leiðar vökvastýrislaust og er verið að reynað halda vökvanum á stýrismaskínunni en lítið hægt að laga þetta þannig að hann þarf aðkeyra restina svona. hann er þó eldhress:)
ég fæ vonandi að heyra í honum um leið og rallið klárast!
þangað til : brake a leg!
Ásta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)