6.6.2008 | 15:28
Reykjanesrally AIFS - Gamanið byrjar í Keflavík í kvöld - Úrslit þokkasamkeppninnar liggja fyrir
ÁSTA & STEINUNN
Fyrir liggja úrslit í þokkasamkeppni rallkappa Íslands og bera þær stöllur Ásta og Steinunn sigur úr býtum og óskum við þeim til hamingju. Við hæla þeirra eru þeir Marían og Jón Þór - en Jón hefur kært úrslitin til mannréttindadómstólsins í Haag og jafnréttisráðs á þeirri forsendu að þeir séu ósigrandi. Pétur og Heimir enda í þriðja sæti eftir dyggan stuðning frá samtökunum 69.
Nú eru kapparnir að gera sig klára fyrir rallið sem hefst í kvöld með nokkrum stuttum leiðum í og við Keflavík og hvetjum við alla til að leggja leið sína þangað í kvöld og fylgjast með baráttunni.
Við væntum þess að keppnin verði slysalaus og drengileg - megi besta áhöfnin vinna.
DS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góða kvöldið.
Á föstudagskvöldið og laugardag fer fram önnur umferðin í Íslandsmótinu í rallý. Það er akstursíþróttafélag Suðurnesja (AIFS) sem heldur keppnina og fer hún öll fram á reykjanesskaganum. Vert er að minnast á mjög áhorfendavænar leiðir sem eknar verða á föstudagskvöldið í Reykjanesbæ - annars vegar sérleið um "nikkel" - leið sem er milli miðbæjarins og flugstöðvarinnar, milli reykjanesbrautarinnar og byggðarrönd. Fyrsti bíll ræsir inn klukkan 19:30. Svo er haldið í miðbæ Reykjanesbæjar og sérleið á malbiki ekinn í tvígang um keflavíkurhöfn. Fyrsti bíll klukkan 20:00 og aftur 20:35. Endilega fyrir áhugasama að kíkja suður með sjó og sjá rallbílaflotann þeysa um.
19 áhafnir eru skráðar til leiks í þessa keppni og stefnir í hörkubaráttu í öllum flokkum - eða eins og frá var horfið í fyrstu umferðinni sem fór fram nýverið.
Í stað þess að spá fyrir um úrslit höfum við sett upp skoðanakönnun til að finna út hvaða áhöfn beri mestan þokka - endilega takið þátt :) - sem stendur er gríðarlega hörð barátta milli Ástu / Steinunn og Péturs / Heimir - en fáir aðrir hafa hlotið atkvæði.
Í þessari slóð má finna tímablað rallsins. http://lia.is/skjol/reykjanesrall08.pdf
DS
Bloggar | Breytt 6.6.2008 kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.6.2008 | 22:44
2008 MSA NATIONAL GRAVEL RALLY CHAMPIONSHIP
Bloggar | Breytt 3.6.2008 kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2008 | 10:47
Nicky Grist heimsmeistari og Ásta Sigurðardóttir
Ég er svo stoltur af litlu systur! Við ættum öll að vera það :)
Þannig er mál með vexti að síðastliðinn föstudag þá drifum við systkynin okkur í verslunarleiðangur og hittum þar fyrir fyrrverandi heimsmeistara aðstoðarökumanna, Nicky Grist og eigum við hann spjall. Svo uppnuminn varð hann af keppnisferli Ástu systur að hann tók sig og sinn dýrmæta tíma og settist niður með henni og fór yfir leiðarnótur fyrir rallið, benti á hættulega staði í og gaf góð ráð. Í framhaldinu þá mætti hann að morgni keppnisdagsins í pittinn til okkar, lánaði okkur kapal í hjálminn og hélt áfram að fara yfir með okkur og aðstoða við nótugerðina (sem var á síðasta snúning). Í framhaldinu lýsti hann yfir áhuga að taka Ástu í þjálfun og fínslípa því margt af því sem hún var að gera var að hans sögn "fáránlega" flott miðað við aldur hennar og keppnisreynslu. Hún væri sannarlega með því efnilegra sem hann hefði hrasað um á sinni ævi.
Colin Mc Rae og Nicky Grist
Fyrir þá sem ekki vita er þessi maður langþekktasti aðstoðarökumaður í heimi. Hann varð heimsmeistari með Juha Kankkunen og keppti með Heimsmeistaranum Colin Mc Rae í gengum megnið af sínum keppnisferli. Hann hefur hætt að mestu keppni í dag - en keppir eitt rall á þessu ári með Hannu Mikkola sem einnig er f.v heimsmeistari.
Gaman verður að sjá hvort framhald verði á samskiptum milli þeirra - en í slóðinni hér að neðan má sjá keppnir í heimsmeistarakeppninni og árangur sem þessi maður er með í reynslubankanum.
http://www.rallybase.nl/index.php?type=profile&driverid=31
DS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2008 | 22:44
Ómetanlegt
Mig langar til að bugta mig og beygja - lýsa með auðmýkt yfir óendalegu þakklæti mínu til ykkar gerðuð á einn veg eða annan það að verkum að náðist að vinna þetta kraftaverk að koma bílnum á 10 dögum í keppni eftir stóra krassið í Manx.
Eftirtaldir og fleirri eiga óendanlegar þakkir skilið:
Fylkir Jónsson - Elvar Jónsson - Hilmar B Þráinsson - Steinar Ægisson - Kraftaverkaskrúfarar TAKK
Þorgerður Gunnarsdóttir og Jón Þór Jónsson - sem hafa aðstoðað í samskiptum erlendis og svo alúðlega mætt með myndavélar að vopni og myndað herlegheitin og keppnirnar úti TAKK
Ísak og Ásta - fyrir að láta sér detta það í hug að sitja með mér í bíl. TAKK
Makar og fjölskyldur ofanritaðra fyrir þolinmæðina - Endalaust TAKK
Bjössi hjá AVIS og - - Já, eiginlega allir sem lesa þennan texta hingað niður - Takk fyrir áhugann og að fylgjast með í blíðu og stríðu.
DS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2008 | 19:40
Kærkomið sumarfrí - :)
Góða kvöldið.
Nú erum við kominn heim og allt eins og það á að vera. 7 vikna sumarfrí framundan sem eru bestu fréttirnar.
Keppni helgarinnar var öðruvísi - lengi vel leit út fyrir að við kæmumst yfir höfuð ekkert í keppnina því bíllinn var eins og lesendur vita ekki klár fyrr en morgunin sem keppnin hófst - og samt var hann ekki klár því ekkert náðist að prófa hann fyrir fyrstu sérleið. Við ákváðum að nota keppnina til að laga bílinn til, klára fínstillingar og uppsetningu og keyra úr honum hrollinn. Eftir svona stórt tjón og rosalega viðgerð þá eru margir hlutir sem þarfnast aðhalds og nýttist keppnin því afar vel í að koma öllu í stand. Við ákváðum að hætta keppninni þegar mjög lítið var eftir - en lítill vandi hefði verið að halda áfram og klára - en við töldum þetta komið gott. Öxullinn sem hrökk í sundur var sannarlega afleiðing tjónsins í síðustu keppni og teljum við að nú sé búið að finna allt út sem þarf.
Mest hissa vorum við þó á hversu þokkalegir tímarnir okkar voru miðað við aðstæður og aksturinn á okkur. Við Ásta náðum ekkert að slípa okkur saman fyrir keppnina, sáralítið að vinna í leiðarnótum og höfðum ekki keppt saman í nærri átta mánuði. Þessi stelpa er algjört undur, vann eljusamlega að nótugerðinni meðan við reyndum að koma bílnum saman og stóð sig eins hetja - engu líkara en við hefðum keppt síðast saman fyrir viku.
Þó að margir séu svekktir yfir því að við gátum ekki beitt okkur 100% núna þá erum við hæðstánægð með helgina. Það er ekki rispa á bílnum og hann stórbatnaði eftir því sem leið á keppnina og við lagfærðum og fundum út bilanir.
Nú er sumarfrí framundan sem verður nýtt í að láta brotin bein gróa almennilega og ná sér í fullt form fyrir seinni hálfleikinn. Ásta verður þó kominn undir stýri á jeppanum sínum strax næstkomandi föstudag þegar önnur umferðin í Íslandsmótinu í Rallý fer fram - en hún keppir þar ásamt 18 ára jafnöldru sinni :)
Við höldum áfram að setja inn fréttir og myndefni í vikunni :=)
DS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2008 | 15:27
Keppni lokið
Danni og Ásta hættu keppni eftir 5. sérleið.
Skemmdir í framdrifi eftir síðasta rall voru farnar að ágerast og því sú skynsamlega ákvörðun tekin að hætta keppni. Erum samt "ógó hamingjusöm og falleg" svo vitnað sé í Danna
Sigurour (pabbi)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2008 | 14:18
5 sérleiðir búnar og tvær eftir
Danna og Ástu gengur vel. Á 5. leiðinni sóttu þau á og nú eru aðeins tvær leiðir eftir. Bendi á slóðina hér að neðan
SIngvi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2008 | 10:05
Gagnleg slóð
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.5.2008 | 09:38
Búin með tvær leiðir
Danni og Ásta eru búin með tvær leiðir í Severn Valley rallinu í Wales og gengur vel. Þau eru þessa stundina í service og við tekur 3ja leiðin.
Singvi (pabbi)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)