Alþjóðarallið að hefjast!

Góðan daginn.

 

Nú í dag hefst alþjóðarallið Rally Reykjavík og stendur það fram á laugardag.

 

Mikið bras hefur verið á flóðhestunum í undirbúningi fyrir þetta rall og því miður virðist ólánið ætla að halda áfram hjá okkur - en óviðgerðarhæf bilun er í drifbúnaði keppnisbíls okkar.

Tekinn hefur verið ákvörðun um að leggja samt af stað í rallið og freista þess að keyra eins langt og hægt er - en rallið býður áhöfnum sen hefja keppnina upp á að koma inn að nýju þó þær detti út - en nýtt drif gæti mögulega verið komið á föstudag til landsins:)

Þetta er og verður þriggja daga veisla fyrir áhugafólk og skorum við á sem flesta að láta sjá sig og fylgjast með stórglæsilegum bílaflotanum berjast um sekúndur. Allar upplýsingar um rallið má finna á heimasíðunni: www.rallyreykjavik.net

 Einnig munum við birta fréttir hér í lok hvers dags.

 Kveðja / Flóðhestarnir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband