25.11.2009 | 15:22
VIÐ UNNUM - AKSTURSÍÞRÓTTAMENN ÁRSINS 2009 ERU FLÓÐHESTAR!
Það voru sjö aðilar útnefndir og hver einn vel að útnefningunni kominn fyrir frábæran árangur og starf í þágu íþróttarinnar. Allt eru þetta sigurvegarar í mínum huga því það þarf ærið starf til að fá útnefningu og ljóst að valið var erfitt þetta ár.
Því verður ekki leynt að ég var nokkuð hissa þegar mér bárust hamingjuóskir í tonnatali síðastliðið laugardagskvöld – þar sem ég var staddur við keppni í Skotlandi – en mikið var ég stoltur að sjá og finna samhug þjóðar minnar ásamt þessum mikla stuðningi við áframhaldandi afrek sem þessi titill blæs í hjarta mér.
En– kannski var þetta smá svindl allt saman.. Hversvegna, jú – því ég var ekkert einn í liði og lít fyrst og síðast á þennan titil sem viðurkenningu til allra þeirra dásamlegu einstaklinga sem lagt hafa sitt á vogarskálarnar til að lyfta rallý á hærra plan hérlendis á árinu sem er að líða.
Af algerri óeigingirni hefur þessi hópur í kringum mig skapað ótrúlegan félagsskap sem hefur gaman af íþróttinni og nýtur þess að leggja sitt af mörkum fyrir betri upplýsingaflæði og almannatengslum fyrir sportið í heild sinni hérlendis og fylgt útrás okkar af mikilli elju í Bretlandi, heimsmeistarakeppninni og IRC.
Gleði, samvinna, ógleymanlegar gleðistundir og lífsreynsla er það sem allir hafa safnað allt árið og árangurinn hefur verið verðlaunaður með þessum titli.
Ég er stoltur af því að leiða þennan hóp og vona að viðurkenning þessi efli og stækki rallýíþróttina i heild sinni – áhuga á henni og sýnileika.
Þeim þúsundum áhugamanna sem fylgjast með okkur þakka ég einnig. Án ykkar værum við ekki með daglegan hvata til stærri markmiða í náinni framtíð!
Jónsi – Elvar – Gerða – Alli – Marri – Jói – Díana – Lísa – Himmi – Bjössi – Bjarki – Ásgeir – Gulli – Pétur – Dóri – Steini Palli – Ísak – Fylkir - Ásta – Gulli Briem og allir hinir sem hafa á enn veg eða annan komið að árangri ársins – þið eruð hluti af þessum titli
Akstursíþróttahópur ársins 2009! TIL HAMINGJU
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
19.11.2009 | 23:12
Dagur 1 - IRC rally of Scotland. Þokkaleg byrjun hjá okkur og erfitt rall framundan
Góða kvöldið.
Við vorum að enda við að klára fyrstu leiðar skoska rallsins sem hófst í kvöld. Ekki verður sagt að dagurinn hafi gengið vel því klúður tímavarða á leið eitt olli því að við vorum ræstir inn á vitlausum tíma - sem kostaði okkar ansi margar sekuntur. En - skítt með það, keppendur virðast almennt hafa farið varlega yfir í kvöld enda aðstæður vægast sagt hörmulegar vegna flóða og rigninga.
Daginn klárum við í sjötta sæti yfir heildina og eru í öðru sæti meðal turbo 4x4 bílanna - árangur sem kom okkur mjög á óvart eftir klúðrið á sérleið eitt.
Amk - það á víst bara að bæta í rigninguna hér í skotlandi á morgun þannig að okkur bíður verulega erfitt verkefni að komast í gegnum þessa keppni brosandi og glaðir - eins og stendur til :)
Kær kveðja til fagra landsins í norðri.
Danni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.11.2009 | 00:58
IRC - rally of scotland. Undirbúningur gengur vel og við erum klárir í ræsingu annað kvöld!
Halló halló.
Komst loksins í internetsamband og hér er smá update.
Við erum búnir að undirbúa okkur undir rallið og skoða þessar leiðir - og verður að segja að annað eins hef ég aldrei séð á ævi minni. Þetta er hlykkjóttasta rall sem ég veit um og til marks um það er lengsti beini kaflinn á 240km af sérleiðum... 250m..
Mér og nýja aðstoðarökumanninum mínum Martin Brady kemur mjög vel saman og vonumst við til að við náum rythma mjög fljótt í rallinu - og vonandi nokkrum topp 10 tímum þegar líða tekur á keppnina.
Keppnisskoðun lauk í kvöld og munum við klára leiðarskoðun á morgun - en rallið hefst annað kvöld með 2 stuttum leiðum í kringum kastala hér í skotlandi. Mér skilst að amk 5klst frá rallinu verði sýnt beint á eurosport þannig áhugamenn ættu að finna leið til að fylgjast með okkur í sjónvarpinu.
Keppendalistinn er magnaður og verður eflaust þvílík barátta á toppnum milli bresku stjórstjarnanna sem hingað eru komnir til að sanna sig.
Ég mun rita hér inn annað kvöld og láta vita um stöðu mála.
Kveðja til allra og takk fyrir ómældan stuðningin :)
Danni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.11.2009 | 18:27
IRC - Rally of scotland 19-21. Nóvember.
Góða kvöldið.
Með mikilli eftirvæntingu og einnig talsverðum kvíða má tilkynna að við hyggjumst ætla að reyna að blóðmjólka annars lítið notaðar heilladísirnar síðar í þessum mánuði og takast á við IRC rally of Scotland.
Keppni þessi verður ógnarsterk en IRC mótaröðina má líkja við Evrópukeppni eða jafnvel heimsmeistarakeppni minna breyttra bíla. Þarna hefur útúnganarstöð fyrir Super 2000 bíla verið og flestir efnilegustu ökumenn heimsins eru að keppa þarna fyrir verksmiðjulið á nýjustu afurðum þeirra.
Ljóst er að nýr aðstoðarökumaður mun verma sætið - en því miður þar sem hvorki Ásta né Ísak sáu sér fært að koma með í keppnina þá verður áhöfnin ekki alíslensk. Það er samt gleðiefni að segja frá því að Martin Brady - einn færasti íraskratti sem uppi hefur verið hefur þegið boð um stólinn og ef miða á við keppnisreynslu hans og árangur (margfaldur evo challenge meistari og hefur keppt í fjölmörgum alþjoðakeppnum sem atvinnukóari) þá er víst að ekki mun taka langan tíma að slipa okkur saman.
Rallið er langt og strangt - ekki minna en Wales rally GB var um daginn - og höfum við ástæðu til að vonast eftir toppáranagri í samanburði við aðra N4 túrbó bíla. Ljóst er þó að S2000 bílarnir verða mikið hraðskreiðari og því úrslit innan topp tíu sennilega ekkert nema draumsýn.
Vitað er að Kris Meeke, Guy Wilks, Keith Cronin, Mark Higgings, Adam Gould, Eyvind Brynjildsen, Freddy Loix og fleirri eru skráðir undir merkjum verksmiðjuliða S2000 Skoda, peugeot, Proton og Fiat - en endanlegur ráslisti liggur ekki enþá fyrir.
Meira síðar í vikunni.
DS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.10.2009 | 21:03
Ævintýrið okkar - Stiklað á stóru um þátttöku okkar í Heimsmeistarakeppninni Rally GB
Jæja – seint og síðar meir finn ég frið til að setja niður nokkrar línur um ævintýrið um síðustu helgi þar sem við reyndum fyrir okkur í heimsmeistarakeppninni í rallý – hafi það farið framhjá einhverjum J
Billinn tryggilega merktur íslenska fánanum
Ferðin út hófst á Cambrian rallinu sem við ætluðum okkur eingöngu til upphitunar og til að stilla saman strengi fyrir stóru keppnina. Dagskipanin var einföld: Engin service, engin stopp, engin dekkjaskipti og allt látið líta út fyrir að um einn hluta stóru keppninnar væri að ræða. Ekki voru heilladísirnar með okkur í þessari æfingakeppni því að risastór steinn á miðjum veginum beygði afturhjólabita og gerði það að verkum að afturdekk bílsins voru útskeif um ca 4cm – með skiljanlegum erfiðleikum við stjórn bílsins í framhaldinu. Á lokaleið rallsins sprakk svo að aftan hjá okkur þannig að við fengum æfingu í að skipta um dekk einnig. Jæja, verklistinn fyrir stóra rallið var langur og var rokið til strax á sunnudeginum og farið að rífa bílinn. Í stuttu máli var skipt um: Kúpplingu, svinghjól, alla öxla, top-mount, hjóllegur og nöf, demparar þjónustaðir og síðast en ekki síst sett nýtt pústkerfi – sem átti eftir að verða afdrifarík aðgerð. Við fengum tvo daga til að leiðaskoða 350km og fengum tvær ferðir um hverja leið og allt gekk eins og í sögu.
Á fimmtudag kom keppnisbíllinn niður til Cardiff og við fórum í keppnisskoðun með grænt ljós allstaðar og spennan að ná hámarki. Um kvöldið var formleg ræsing á rallinu þar sem við ókum í fullum skrúða yfir rásmark í miðbæ Cardiff að viðstöddu fjölmenni og þar á meðal tugir Íslendinga sem fylgdu okkur alla leið í ævintýrinu. Var kynnirinn á því að allir eyjaskeggjar hlytu að vera mættir til Cardiff því fagnaðarlætin voru ótrúleg og var mál manna að Hirvonen og Loeb hefðu staðið í skugganum af Íslendingum þetta kvöld J
Í rásmarkinu í Cardiff
Föstudagsmorgun og nú var það alvaran og ekkert annað. Bíllinn á undan okkur með rásnúmmer 69 var 2005 módel af Ford Focus WRC - bíll sem á að vera amk 4sek pr mílu hraðari en okkar bíll og algerlega geðveik græja. Ekki lét ég mig dreyma um að ná honum þannig leiðin átti að vera greið. Við ræsum inn og eftir 11 km af 25 náum við honum. Maðurinn greinilega kunni ekkert að keyra og við töfðumst töluvert fyrir aftan hann áður en hann hleypti okkur frammúr. 27 besti tími yfir heildina og við áttum nóg inni fyrir utan tafirnar vegna bíls 69. Ég pakkaði saman reiðinni og gekk að bílstjóranum sem hafði tafið okkur, kynnti mig og þakkaði honum fyrir að hafa hleypt okkur „greiðlega“ frammúr – í von um að hann myndi kannski vera athugulli næst um hvort við værum komnir aftan að honum.
Vel tekið á því í sweet lamb - sérleið 2
Leið 2 var frekar stutt og því útilokað að við myndum ná bílnum á undan okkur. Vondar minningar einkenndu akstur okkar því þetta var sama leið og við nærri veltum á í Mid – Wales rallinu í sumar , en samt náðum við 21 besta tíma og vorum nokkrum sek frá hraðasta tíma N4. Hrottalega gaman og þvílíkt magn áhorfenda, íslenski fáninn og ekkert nema hamingja í Sweet lamb. Leið 3 var mjög löng og þekktum við hana vel. Nú var að vona að bíll 69 myndi hleypa okkur greiðlega frammúr þegar við myndum ná honum sem við gerðum mjög hratt. Reyndar var farið að hægja á okkur þegar við náum honum vegna leks vökvastýris hjá okkur – en þegar sérleiðin var hálfnuð vorum við komnir að bíl 69. Í stuttu máli þá hleypti hann okkur ekki frammúr, bara alls ekki. Við reyndum að fara þétt að honum, flauta og blikka ljósum en allt kom fyrir ekki og þegar framrúðan okkar brotnaði við tilraunirnar þá ákváðum við að halda okkur 50m fyrir aftan hann og freista þess að hann sæi okkur. En nei, ekki fyrr en í næstsíðustu beygju sérleiðarinnar hleypti hann okkur frammúr og þið getið rétt ímyndað ykkur hitastigið inn í bílnum okkar! Þvílík framkoma og óíþróttamannlegheit – eitthvað sem við höfðum aldrei kynnst á ævi okkar áður. 27 besti tími og það sagði okkur hvað hefði getað orðið með hreinni leið.
Nú fengum við loksins 15 mín service og gátum lagað vökvastýrið og annað smálegt sem var að. Þegar tími okkar var við það að líða þá verður einn var við að púst bílsins var farið að liggja utaní og sjáum við að nýju fínu pústupphengjurnar sem keyptar höfðu verið í vikunni voru að BRÁÐNA. Á tveimur mínútum var gert það sem hægt var að herða pústið og svo urðum við að rjúka út til að fá ekki tímarefsingar.
Þjónstuhlé og stuðningsmannahópurinn bíðandi í eftirvæntingu inn á leið
Leið 4 var sama leið og leið 1 í rallinu og nú var bíll 69 loksins ekki fyrir framan okkur og leiðin greið í topp tíma. 5-4-3-2-1 BÚMMMMM ... Um leið og við þeystum að stað úr rásmarkinu varð rosa hávaði og okkur ljóst að pústkerfið hafði farið í sundur eða eitthvað. Ekkert amaði þó að bílnum fyrir utan smá aflminnkun þannig við þeystum áfram í hávaðanum. Eftir smá stund heyrði ég í Andrew segja „ i cant see“ og voru leiðarnótur orðnar stopular fram að því. Ég kenndi ónota í augum líka en ekkert alvarlegt. Þegar hann stundi „I can´t breath“ þá ákvað ég að stoppa og kanna hvað væri í gangi – en þarna var farið að bera á smá reyk í ökumannsrýminu og vildi ég fyrst og síðast fullvissa mig um að enginn eldur væri laus.
Eftir stutta skoðun á bílnum sá ég að aðeins vantaði 50cm bút aftast á pústið þar sem hljóðkútur hafði verið – og við ákváðum að halda áfram. 22km eftir af leiðinni og alltaf magnaðist óloftið í bílnum. Við ókum mjög rólega, létum bílinn renna niður brekkur og slíkt en þegar 7km voru eftir af leiðnni gjörbreyttist alllt og ljóst að bíllinn var farinn að pústa beint inn í sig. Hitinn og súrefnisskorturinn var með eindæmum og ég spurði Andrew regluega hvort væri í lagi með hann – og hann svaraði – meðan hann var að bisa við að halda hurðinni opinni sín megin. Þegar aðeins nokkrir kílómetrar voru eftir af leiðinni þá tókst honum að rífa hurðaopnarann lausan sín megin og eftir það var ekki hægt að opna hurðina, hvorki innan né utanfrá. Loksins sást endamarkið og mín síðustu skilaboð til Andrew voru, „try to breath as little as possible“ !
Í endamarki var liðið yfir hann – ég lagði útí kannti, barði í brjóstkassan á stóra manninum og öskraði á læknishjálp og súrefni – sem ég vissi að var í endamarkinu. Kallinn saup hveljur og sýndi lífsmark – en datt jafnharðan út aftur. Þegar menn verða fyrir eitrun verða þeir gulir.. gulir eins og sólin – sem er mjög óhugnarlegt. Ég sat þarna og beið eftir helvítis seinvirku Bretalæknunum sem dröttuðust svo loksins með súrefniskútinn að bílnum og ég náði að setja grímuna á Andrew og halda honum með meðvitund. Þarna komumst við að því að hann var fastur í bílnum því hurðina hafði hann skemmt á leiðinni og því ekki hægt að komast að honum eða koma kallinum út hans megin. Eftir tilraunir við að skrúfa hurðina í sundur og mælingar þess efnis að hann kæmist aldrei út um gluggan tók ég á það ráð að draga hann út bílstjóramegin, yfir veltibúr og allt heila klabbið. Það tókst með herkjum og þarna gátu sjúkraliðar tekið við. Þyrla var á leiðinni og Andrew fékk adrenalín í æð til að örva andadráttinn – áður en honum var komið fyrir á sjúkrarúmi.
Ég veit ekki hvort ég eigi að vera reiður eða þakklátur – sennilega bara blanda af hvoru tveggja, en ég þakka amk guði fyrir að íslenska landhelgisgæslan og slökkviliðið hérlendis eru alvöru fagmenn – eitthvað sem kollegar þeirra í Bretlandi vita ekki hvað er. Þyrlan var klukkutíma á leiðinni því hún var villt? Og svo loksins þegar hún kom þá var stressið svo mikið við að fá fuglinn niður að hún sveimaði í 2ja km hæð í korter meðan verið var að rýma gatnamót nærri sem lendingarpall. Þvílíkar aðfarir hef ég aldrei séð – en jæja, niður kom þyrlan og kallinum var flogið á sjúkrahús þar sem hann eyddi 4 klst í súrefnistjaldi.
Við ókum bílnum 150 km til Cardiff og settum nútt púst og upphengjur – og þá var hann klár í keppni. Um kvöldið stoppaði leigubíll á þjónustusvæðinu og út steig gulur Andrew Sankey. Kallinn hafði bókað sig út af spítalanum þvert á vilja læknanna. Hann fékk að borða og var svo ekið á hótelið um áttaleytið þar sem hann lagðist til hvílu. Nóttinni eyddi ég í að gefa honum reglulega að drekka og á dauða mínum átti ég von en ekki að hann stæði upp um morgunin, vekti mig og sagði „we have to go, we are due out 8:18“.Eftir langa sannfæringarræðu um að hann treysti sér aftur í bílinn tókum við ákvörðun um að halda áfram og klára það sem við byrjuðum á J Þetta var sennilegasta vitlausasta ákvörðun í heimi því eftir að hafa fengið 20mín refsingu þá vorum við aftast á merinni og ekki nokkur leið að halda í við hraða þeirra sem voru hálftíma á undan okkur á veginum. Þetta er svona eins og að keppa í spretthlaupi – nema keppinautar þínir eru allir á hlaupabrautinni en þú þarft að sætta þig við sandgryfjurnar við hliðiná!
Frekar bólgin áhöfn eftir púst innöndunina
Þessi keppnisdagur gekk ekki heldur vel, frekar en dagurinn á undan. Á leið 9 fór í sundur bremsuslanga að aftan og við ókum þá leið algerlega bremsulausir. Því var kippt í liðinn og áfram var haldið. Á leið 10 ókum við ansi fast með hægra framhjól á risastein sem óprúttnir áhorfendur höfðu komið fyrir í hægra hjólfarinu – sáust helvítin glottandi uppúr runna nærri en fjöðrun bílsins tók þetta og eina sem gerðist var að stýrið sneri ca 5gráður vitlaust eftir þetta. Í lok leiðarinnar skoðaði ég bílinn og sá ekkert að þannig við óðum inn á leið 11 og allt gekk að óskum – en á ferjuleið að leið 12 þá skyndilega hrökk stýrisendinn hægra megin í sundur og bíllinn eins og útskeif kú út á miðjum vegi."stýrisendinn" fíni sem ég smiðaði útí skógi og ók 220 km til Cardiff á
Þarna var komið myrkur og við í rassgati alheimsins inn í skógi, ekkert símasamband, engir varahlutir og ekki sálu að sjá neinstaðar. Eftir miklar pælingar var tekinn íslenska leiðin á þetta: Tvær krafttangir voru í verkfæratöskunni sem við höfðum meðferðist og einn 8mm lykill – ásamt nokkrum plastbendslum. Þá er bara að smíða sér stýrisenda ala Ísland J við treystum þó þessari viðgerð ekki um síðustu sérleið dagsins þannig við skiluðum inn tímakorti okkar of fengum 10mín refsingu fyrir að klára ekki þessa lokaleið dagsins. Bílnum var ekið til Cardiff á stýrisendanum fína og nýr settur í bílinn – þá var hann klár í keppni.
Liðið fundaði um kvöldið um áframhaldið og niðurstaðan var sú að keyra lokadaginn þrátt fyrir að vera með þeim allra síðustu í keppninni – en þó aðeins fulla ferð og að við skyldum gera okkar besta til að sýna klærnar miskunarlaust og reyna að klukka inn góða tíma. Bíllinn var í algjöru toppstandi og ekkert átti að vera okkur að vanbúnaði að sækja – en þegar við settum í gang á sunnudagsmorgun þá fór vökvadæla fyrir drif bílsins ekki í gang og enginn tími til að finna út hvað ylli þessu. Örlög okkar voru bara þessi því ef þessi ágæta dæla virkar ekki þá virka engar driflæsingar bílsins og raunar tíu sinnum erfiðara að keyra bílinn og aldrei hægt að ná góðum tímum svona.
Þessi frábæri bíll sem ekki hafði slegið feilpúst frá upphafi svo segja megi (öll vandræði okkar voru ekki bílnum að kenna) sveik okkur á lokadegi rallsins – og það sem meira er, það nægði að endurræsa stjórntölvu drifanna með einni einfaldri skipun til að allt færi að virka á ný en það gátum við ekki gert fyrr að rallinu loknu því ekkert þjónustuhlé var á lokadeginum.
Endamark rallsins og ekkert verið að fela upprunann :)
Allaveganna - örmagna eftir þessa griðarlöngu keppni kláruðum við allar leiðir sunnudagsins og enduðum í 41 sæti yfir heildina af þeim 78 sem lögðu af stað í keppnina. Í endamarki var sem allt hefði gengið eins og í sögu því stolt okkar var mikið að hafa komist alla leið og hávær stuðnings og samúðarköll áhorfenda í endamarki réttu úr baki okkar og bætti á augabragði fyrir öll vonbrigðin sem við höfum upplifað undanfarna daga. Íslenski fáninn var dreginn upp við lófatak og samkennd viðstaddra var augljós – enda á flestra vitorði lífsreynsla okkar í þessari keppni. Að fara í svona keppni væri ógjörningur ef ekki væri fyrir samtaka átak fjölmargra fyrirtækja og einstaklinga. Af ótta við að gleyma einhverjum kýs ég að telja ykkur ekki upp – en þið vitið hver þið eruð og megið vita að ég er klökkur af þakklæti og hlýju til ykkar. Þið eruð hetjurnar mínar og verður aldrei gleymt.
TAKK Hver einasti haus í stuðningsmannahópnum – TAKK fyrir að fylgjast með og hjálpa til með áhuga ykkar!
Ég hef 7 daga til að afla fjár fyrir næsta stórævintýri – IRC – Rally of Scotland sem fer fram í enda nóvember. Þangað stefnum við ótrauð og sennilega með 100% íslenskri áhöfn í þetta sinn. Ég vona að þið haldið áfram að styðja í huga og verki!
Kveðja / Danni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
25.10.2009 | 13:30
WRC lokadagur
Góðan daginn
Þriðji dagurinn í WRC og bíllinn er ekki alveg fullkominn, driflæsingar virka ekki og svona, en félagarnir skemmta sér vel og segjast vera að drifta fyrir áhorfendur sem eru jú ekki fáir, greinilega með eitthvað "Show off"
Þeir enduðu í 41. sæti overall og eru mjög ánægðir með það og senda bestu kveðjur til Íslands.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.10.2009 | 12:35
WRC dagur 2
Það er búið að rigna helling og mikil drulla, ár og lækir á vegunum og rosalega gróft. Leið 7 var mjög slæm og Danni vonaði að hún yrði ekki keyrð eftir hádegi, það verður gaman að sjá hvort svo verður.
Þeir misstu bremsur á leið 9 og þurftu að stoppa á miðri leið og náðu að tengja þær. Þeir eru nú á leið í viðgerðarhlé að gera við þær. Það verður ekki endurraðað núna í hádegishléinu.
Það verður gaman að fylgjast með eftir hádegi, Hirvonen þarf að gefa í til að vinna Loeb þetta er búin að vera spennandi keppni.
Á síðustu leiðinni í dag brotnaði stýrisendi, en það er verið að gera við það og þeir verða með í fyrramálið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2009 | 14:38
Leið 4 :(
Það leið yfir Sankey á leið 4, sennilega vegna þess að einhverjar eiturgufur hafa komið inn í bílinn. Hann var fluttur með sjúkrabíl en er ekki í lífshættu. Það er í góðu lagi með Daníel.
Bílinn í góðu lagi og þeir geta haldið áfram í fyrramálið, ef Sankey treystir sér til.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.10.2009 | 11:03
Eftir fyrstu 3 leiðar
Daníel er í 10. sæti í sínum flokki og overall í 27. sæti eftir fyrstu 3 leiðar.
Á fyrstu leið náðu þeir bíl og það tafði þá mjög mikið. Leið 2 gekk vel, en á leið 3 gekk illa þeir misstu vökvastýri og bíll sem þeir náðu hleypti ekki frammúr í 6 km
og braut framrúðuna. En þeir halda áfram og það er æðislega gaman 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2009 | 09:48
WRC loksins dagur 1
Gleðilega hátíð kæru landsmenn
Fyrsti dagur í keppni hjá Daníel, þeir sem vilja fylgjast með tímum þá er hér slóðin
http://www.wrc.com/jsp/index.jsp?lnk=405&season=2009&rally_id=GB
Helstu fréttir verða settar hér inn, endilega fylgist með.
Kveðja, Gerða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)









dullari
hvilberg
dabba
gudni-is
ehrally
teamseastone
biggibraga
motormynd
rally
gustav
hhbe
team-pinky
elvaro
gullibriem
evorally
raggim
sigurlaugdora
rallysport
teamyellow